Press Release

Almenningur velur hverjir fara á auglýsingaskilti í leit að ástinni

Nú geta Íslendingar tilnefnt einhleypa vini, ættingja eða samstarfsfólk sitt í nýrri herferð þar sem valdir einstaklingar munu birtast á auglýsingaskiltum víðs vegar um landið allt í von um að hjálpa þeim að finna ástina.

2 min read
Almenningur velur hverjir fara á auglýsingaskilti í leit að ástinni

Nú geta Íslendingar tilnefnt einhleypa vini, ættingja eða samstarfsfólk sitt í nýrri herferð þar sem valdir einstaklingar munu birtast á auglýsingaskiltum víðs vegar um landið allt í von um að hjálpa þeim að finna ástina.

Stefnumótaappið Smitten hefur opnað fyrir tilnefningar í herferðinni „Tilnefndu einhleyping“, þar sem almenningi gefst kostur á að tilnefna einhleypa einstaklinga sem þeir telja eiga skilið smá aukna athygli. Úr tilnefningunum verða valdir einstaklingar sem fá sitt eigið pláss á áberandi auglýsingaskiltum um land allt.

Tilnefningar eru opnar frá 11.júní til 23.júní.

Við eigum flest einn vin eða vinkonu sem virðist hafa allt til alls. Skemmtileg, góðhjörtuð, áhugaverð og algjör fengur, en samt enn á lausu. Núna geta vinir og vandamenn loksins gripið inn í.

„Við höfum öll einhvern tímann sagt: hvernig er þessi frábæra manneskja enn einhleyp? Nú gefum við fólki tækifæri til að hjálpa vinum sínum á skemmtilegan og óhefðbundinn hátt, og fagna góðu fólki sem á sviðsljósið skilið,“ segir Davíð Símonarson, framkvæmdastjóri Smitten.

Hvernig virkar þetta? Hver sem er getur sent inn tilnefningu með stuttri lýsingu á því hvers vegna viðkomandi á skilið að komast á skilti. Hvort sem það er besti vinurinn, systirin, vinnufélaginn eða nágranninn. Smitten hefur samband við þá sem valdir eru, fær samþykki þeirra, enginn endar á skilti án þess að vilja það sjálfur.

Tilnefningar fara fram á: **https://smitten.co/tilnefndu**

Kannski byrjar næsta stóra ástarsaga Íslands á tilnefningu frá góðum vini.

Um Smitten Smitten er vinsælasta stefnumótaapp Íslands síðastliðin fjögur ár í röð. Appið er einnig í notkun í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Möltu og hefur hjálpað tugþúsundum að kynnast nýju fólki á jákvæðan og skemmtilegan hátt.

Nánari upplýsingar Sylvía Clothier Rúdolfsdóttir · 694-1689 · sylvia@smitten.co